29.07.2009 19:21:03 / reykir
Hæ, hæ öll sömul.
Okkur var að bjóðast þessar hurðar til kaups á fínu verði, u.þ.b. 100.000 kr. með karmi sem að sögn kunnugra er ódýrara en gengur og gerist.
Hérna að neðan er mynd af gripnum, hvernig líst ykkur á? Endilega segið ykkar skoðun í athugasemdunum. Við myndum að öllum líkindum setja eins hurð fyrir kjallarann svo þetta sé í stíl. Sumir muna kannski eftir hlerunum sem voru fyrir aðalhurðinni, ef áhugi er fyrir því mætti skoða það að setja þá upp síðar eða láta smíða nýja. Við skoðum það seinna.
Kveðja,
Ágústa.
»
01.06.2009 19:57:31 / reykir
Unnið verður í gamla bænum eftirfarandi helgar í sumar:
13. og 14. júní
11. og 12. júlí
8. og 9. ágúst
réttahelgin í september (þeir sem vilja)
»
26.04.2009 12:11:15 / reykir
Hæ hæ öll sömul!
Jæja, núna er sumarið komið og framundan nokkrar vinnuhelgar í gamla bænum. Hann er alltaf að verða flottari og flottari og í haust verður líklegast hægt að gista í kjallaranum!
Í sumar liggja fyrir nokkur verkefni en einnig þarf að taka ákvörðun um nokkur atriði svo hægt sé að halda áfram. Til þess að enginn verði ósáttur við þær leiðir sem eru farnar höfum við ákveðið að kjósa um þessi atriði, allir sem hafa skoðanir á málunum hafa þannig tækifæri til að koma þeim á framfæri - meirihlutinn ræður svo!
Málin sem þarf að kjósa um
Mál nr. 1 - Gólfin
a) Setjum nýtt parket á gólfin? Ef við setjum parket verður hitinn settur í gólfið, undir parketið.
b) Pússum gólffjalirnar sem fyrir eru og lökkum? Ef við höldum gólffjölunum verða settir venjulegir ofnar.
Mál nr. 2 - Hurðarnar
Ákveða þarf hvar þær verða smíðaðar.
Mál nr. 3 - Útitröppurnar
a) Eiga þær að vera steyptar?
b) Eiga þær að vera úr tré?
Einnig þarf að ákveða hvort pallurinn verði stærri en hann var og nái lengra meðfram húsinu.
Vinnu/kosningahelgi 8. - 9. maí
Þetta er tillaga að vinnu- og kosningahelgi, látið endilega vita hér ef þið komist eða ekki. Ef fólk kemst ekki getur það látið aðra taka sitt atkvæði eða sent mér línu með sinni skoðun. (Þetta er ekki alveg eftir kosningalögum en skítt með það... 
Við höldum svo fund á laugardeginum og kjósum, endilega verið búin að vellta þessum málum aðeins fyrir ykkur og móta ykkur skoðun.
Verkefni sumarsins
Þetta er helstu verkefnin sem vinna þarf í sumar:
- moka frá húsinu og klára að skipta um jarðveg næst húsinu
- klára drenmálin og ganga frá skurði og fínisera
- skolp og kaldavatn
- loka húsinu, setja hurðar
- rífa tröppurnar
Sjáumst hress!
Ágústa.
»
16.09.2008 21:38:56 / reykir
Sæl öllsömul og takk kærlega fyrir skemmtilega réttarhelgi.
Það er alltaf jafn óskaplega gaman að fá ykkur hingað í sveitina og fannst okkur þessi helgi takast með eindæmum vel,þökk sé góðu veðri. Vonum við að allir séu við hestaheilsu hressir og kátir! Þegar leið á vikuna fannst ýmislegt í kjallaranum sem við könnuðumst ekki við svo sem: gönguskór dökkbrúnir nr:39(mjög svo eiguleigir skór).
Hvítur stutterma bolur með v-hálsmáli,er frá HogM,kvennstærð.Svartur stutterma bolur með svakalega dulrænu munstri framaná,stærð L. Weleda bossakrem,heil túba(trúlega á Eyrún þetta). Auk þess nokkrir mis illalyktandi táfýlusokkar sem voru þvegnir í snarhasti og geta eigendur þeirra farið í þá tandurhreina í næstu heimsókn!
Endilega ath hvort þið eigið ekki eitthvað af þessu, að sjálfsögðu geymum við þetta þar til næst.
Bestu kveðjur og sjáumst sem fyrst aftur

Hulda.
»
08.09.2008 22:38:49 / reykir
Er búin að setja inn myndir á bloggið mitt: svavasvava.blogspot.com
Takk fyrir yndislega helgi, þið eruð frábær!
Kveðja Svava
»
01.09.2008 15:01:58 / reykir
Sæl vertu elsku ættin mín!
Stelpan er komin heim frá spáni hress og kát!
Langaði til að skrifa nokkrar línur þar sem það er frekar langt síðan einhver hefur komið með fréttir! Ég var semsagt á Spáni nánar tiltekið í Barcelona í ágúst.Þar var ég á spænskunámskeiði ( y ahora puedo hablar...), verslaði eins og það væri enginn morgundagur ( enda fataskápurinn heima nánast tómur), fór á ströndina og labbaði um þessa fallegu borg um það bil 2-3 klst á dag
Ég hitti líka Ágústu frænku í hádegismat og hún bauð mér upp á ekta ítalskan ís eftirrétt! Gott að eiga góðar frænkur
Vildi líka nota tækifærið og óska Boga og Krístínu til hamingju með drenginn og fallega nafnið hans.
Ég fékk hringingar út til Spánar þegar ættarmótið var haldið og heyrði ég ekki betur en að stemmningin hafi verið góð og allir í dúndurstuði.. Ég var svoooo með í anda hehe!
Það ættu þá allir að vera í æfingu í að skemmta sér vel þar sem að nú líður að RÉTTUM 2008!!! Við Palli getum varla beðið og okkur hlakkar mikið til að hitta bestu og fjörugustu ætt landsins! />
Sjáumst næstu helgi hress og kát
Hasta luego...Svava frænka
P.S. ef einhver hefur pláss í bílnum fyrir tvo netta reykvíkinga þá endilega látið mig vita
(ég og Palli)
»
09.06.2008 23:05:35 / reykir
Þann 8. júní var næst nýjasti reykjaliðinn skírður og fékk nafnið Bjarni Gunnar. Honum virðist líka vel við nafnið þó hann væri ekki mjög ánægður með ræðu prestsins. Veisla var haldin heima í Fjallakórnum og þökkum við öllum sem gátu komið og verið með okkur og þökkum kærlega fyrir allar fallegu gjafirnar sem hann fékk.
Nafnið Bjarni er skírt út í loftið en Gunnar ef skírt í höfuðið á henni ömmu Gunnu (ásamt öðrum Gunnum í ættunum)
Eftir tvo daga fer Bjarni Gunnar inn á spítala í aðgerð no 2 þar sem gera á við vörina á honum þannig að við komumst ekki norður í útskrifarveisluna en sendum bestu kveðjur til allra sem verða þar
kær kveðja fjölskyldan úr Fjallakórnum (Eyrún og co.)
p.s. myndir frá fjölskyldunni er á flickr.com/photos/arnistef
»
27.04.2008 19:31:05 / reykir
Hæ, hæ öll sömul.
Jæja, þá er enn eitt sumarið skollið á og tími kominn til að plana vinnuhelgar í Gamla bæ.
Við hittumst nokkur um síðustu helgi heima hjá Helgu og Ása, ræddum næstu skref og settum niður vinnuhelgar. Við ákváðum nokkrar dagsetningar sem viðmið, þegar nær dregur hverri helgi tölum við svo okkur saman og sjáum hversu margir komast.
Vinnuhelgar 2008:
9. 10. og 11. maí - Hvítasunnuhelgin
31. maí - 1. júní
4. - 6. júlí
9. - 10. ágúst - Þessa helgi er ættarmót á Hvammstanga
5. - 7. september - RÉTTIR
Endilega kommentið hérna ef þið komist um Hvítasunnuhelgina, það væri frábært að sjá sem flesta!
kv.
Ágústa.
»
01.03.2008 19:57:15 / reykir
Elsku amma. Við erum viss um að þér líður vel núna og að afi hefur tekið á móti þér með opinn faðm. Það verður skrýtið að koma á Hvammstanga og í sveitina nú þegar þú ert farin. En við munum hugsa til þín og ef til vill muntu kíkja við til okkar án þess að við verðum þess vör.
Við munum alltaf muna þig. Við munum muna þig sem glaðværa, umhyggjusama, einstaklega duglega og hlýja manneskju. Manneskju sem hafði mikla samúð, manneskju sem grét ef aðrir grétu eða áttu bágt. Barngóð og gefandi varstu líka. Þú varst konan sem iðulega hugsaðir um aðra á undan sjálfri þér, settir matinn á borðið en beiðst með að fá þér sjálf þar til allir voru búnir að borða. Við munum muna þig sem óstöðvandi í því sem þú tókst þér fyrir hendur hvort sem það var eldamennska, bakstur, garðurinn eða að annast börnin eða dýrin. Sum okkar hefðu þurft að biðjast afsökunnar á því að stela jarðaberjum úr garðinum þínum. Elsku amma, þau voru bara svo góð, eins og allt sem þú ræktaðir. Þú hafðir einstakt lag á blómum og garðurinn þinn var alltaf svo fallegur. Við viljum þakka þér fyrir að halda táslunum okkar heitum á veturna með því að senda okkur ullarsokka og peysur sem þú hafðir sjálf prjónað. Við viljum þakka fyrir allar kleinurnar og pönnsurnar og við þökkum fyrir að þú skammaðir okkur þegar við gerðum eitthvað af okkur. Við þökkum þér líka fyrir að hugga okkur þegar eitthvað var að. Við þökkum fyrir að hafa fengið að vera hjá þér í sveitinni. Það var okkur dýrmætt.
Með þessum fáu orðum viljum við þakka fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og gefið okkur fjölskyldunni. Við þökkum Guði fyrir þig og alla ættina okkar og biðjum þess að englarnir gæti þín og afa. Einnig biðjum við Guð að blessa stelpurnar þínar, tengdasyni, barnabörn og barnabarnabörn aðra ættingja, vini og kunningja sem nú hafa átt um sárt að binda.
Við gleymum þér aldrei
Lísa, Svava og Sindri
»
11.02.2008 18:33:42 / reykir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Ósk Ágústsdóttir
Frá Reykjum í Hrútafirði, andaðist á sjúkrahúsinu Hvammstanga þann 8. febrúar sl.
Útför hennar fer fram frá Hvammstangakirkju föstudaginn 15. febrúar kl. 14.oo. Jarðsett verður í Staðarkirkjugarði.
Boðið verður upp á rútuferð (56 sæti) frá Hvammstanga að Stað og til baka að erfidrykkju lokinni.
Dætur hinnar látnu, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn.

Minningar
Elsku amma
Þú varst ætíð mjög stór hluti af lífi okkar systkinanna á Reykjum. Við vorum svo lánsöm að alast upp í návist þinni hér í Hrútafirðinum fyrstu árin, en það var okkur ómetanlegt og án efa eitthvað sem við búum að alla okkar ævi. Ég minnist þess að hafa spjallað við þig tímunum saman, hangandi í svunntunni þinni á meðan þú hrærðir í pottum, stoppaðir í sokka eða tókst til hendinni í garðinum, en þar áttum við saman margar góðar stundir. Það varð því heldur en ekki breyting á lífi okkar þegar þú fluttist í litla dúkkuhúsið (bílstjórahöllina) á Hvammstanga hér um árið og ekki var legnur hægt að skottast inn í herbergi til þín og skrafa um heima og geima. En alltaf lá leið þín reglulega heim í fjörðinn þinn og dvaldirðu oft langdvölum hjá okkur, svo sem um sauðburð og í heyskap, enda tókstu það ekki í mál að láta þitt eftir liggja á háannatímum sem þeim. Dugnaður og hjálpsemi þín voru mér, og eflaust mörgum öðrum, mikil hvatning og er óhætt að segja að þú hafir skilað þínu með sóma.
Elsku Ósk amma, þú varst mér svo góður vinur. Ég sakna þín mikið og er ótal margt sem ég vildi getað sagt þér, og enn fleira sem ég ætlaði að spyrja þig um áður en þú færir. Síðasta heimsókn mín til þín á spítalann á Hvammstanga áður en þú veiktist er mér mjög minnisstæð og ákaflega dýrmæt minning, en þá kvaddirðu mig með brosi og orðunum ,, við geymum það þangað til næst“. Þessi síðustu orð heyri ég svo oft þegar ég hugsa til þín og það er svo sannarlega eitt og annað sem verður að bíða um sinn.
Elsku amma, ég er sannfærð um að þú fylgist vel með okkur öllum og að við hittumst svo aftur á ný, bara á öðrum stað og öðrum tíma.
Þín Sara
Liljan
Ég leit eina Lilju í holti,
hún lifði hjá steinum á mel.
Svo blíð og svo björt og svo auðmjúk,
en blettinn sinn prýddi hún vel.
Ég veit það er úti um engi,
mörg önnur sem glitrar og skín.
Ég þræti ekki um litinn né ljómann,
en Liljan í holtinu er mín.
Þessi Lilja er mín lifandi trú,
þessi Lilja er mín lifandi trú.
Hún er ljós mitt og von mín og yndi,
þessi Lilja er mín lifandi trú.
Og þó að í vindunum visni
á völlum og engjum hvert blóm.
Og haustvindar blási um heiðar
með hörðum og deyðandi róm.
Þó veturinn komi með kulda
og klaka og hríðar og snjó.
Hún lifir í hug mér sú Lilja
og líf hennar veitir mér fró.
Þessi Lilja er mín lifandi trú.
Þessi Lilja er mín lifandi trú.
Hún er ljós mitt og von mín og yndi,
Þessi lilja er mín lifandi trú.
Lag og texti eftir Þorstein Gíslason
Dásamlega amma
Elsku amma þú hefur verið hjá mér í 11 ár og alltaf hefur mér fundist ég örugg ef ég veit af þér í húsinu, og það mun aldrei hætta ég veit af þér hvenar sem er og hvar sem er, þú munt ávalt fylgja mér og fjölskyldu minni.
Guð blessi þig og passi, þess óskar
Rakel Ósk
»
27.12.2007 16:13:21 / reykir
Jólakveðja
Til allra í stórfjölskyldunni
Frá Reykjum
»
26.11.2007 16:41:54 / reykir
Fréttablaðið, 26. nóv. 2007 07:00
Ísafjarðar-Matador er jólagjöfin í ár
Háskólaneminn Páll Ernisson kann ekki að prjóna sokka í jólapakkana, og brá því á það ráð að búa til borðspil til að gefa vinum og vandamönnum.fréttablaðið/gva
Háskólaneminn Páll Ernisson leysti jólagjafavandamál ársins með því að búa til borðspilið Ísafjörður einokun. Hugmyndin er nánast eins stolin og hún getur verið," segir Páll og hlær við. Fyrirmyndirnar eru spil á borð við Matador. Þetta snýst allt um fasteignabrask," útskýrir hann.
Páll er fæddur og uppalinn á Ísafirði, en stundar nú nám í landfræði við Háskóla Íslands. Þar sem fjármagn til jólagjafakaupa var af skornum skammti, eins og gjarnt er um með námsmenn, varð eigin framleiðsla ofan á.
Ég kann ekki að prjóna, svo þetta kemur í staðinn," segir hann og hlær. Upphaflega var spilinu einungis ætlað að fara í jólapakka til fjölskyldunnar, en það verður einnig tekið til sölu í verslun systur hans, Blómaturninum á Ísafirði. Hún er búin að taka niður tíu pantanir nú þegar, og ég er búinn að selja tíu spil," segir Páll, en 50 spila upplagið kemur út 1. desember.
Þó að hugmyndin sé ekki alveg ný af nálinni hefur Páll staðfært spilið svo það henti ísfirskum veruleika. Hættuspjöld vísa meðal annars í ísfirsku fegurðarsamkeppnina Óbeislaða fegurð, ísfirsk fyrirtæki styrkja spilið og göturnar eru að sjálfsögðu ísfirskar.
Verðlagning þeirra reyndist þó nokkuð snúin. Ég var eiginlega hræddastur um að móðga pabba. Hann býr í Mjógötu, sem er ódýrasta gatan í spilinu. Honum finnst það hræðilegt," segir Páll og hlær við.
Hann vonast til þess að spilið verði jólagjöfin í ár. Að minnsta kosti fyrir þá sem hafa ekki efni á að kaupa GPS tæki á línuna," segir hann glettnislega. - sun
http://visir.is/apps/pbcsi.dll/bilde?Site=XZ&Date=20071126&Category=LIFID01&ArtNo=111260124&Ref=AR&MaxW=260&MaxH=260&NoBorder=1
»
14.11.2007 21:06:21 / reykir
Um síðustu helgi luku pabbi og Jón rafvirki við lagnir og tengingar á gólfhita kerfinu og hleyptu á það. Strax á sunnudaginn mátti finna yl í bænum, en það eru líklega um 40 ár síðan hitinn var tekin af og fólk flutti úr húsinu (en þá fluttu hænurnar inn).
Kveðja
Rakel Ósk
»
03.11.2007 18:52:33 / reykir
Í dag gengu pabbi og Aron frá nýjum rafstreing á milli húsa, búið er að tegnja í bráðabyrgða töflu í gamla bæinn, en eftir er að ganga frá honum inni í húsi hjá okkur og tengja í töflu þar.
Besta veður var hér í dag að vísu dálítið hvasst en ágætasti hiti 15-20°c (djók)
Kveðja Rakel Ósk
»
09.10.2007 22:58:04 / reykir
Galvaskur hópur skrapp norður um síðustu helgi og fór í verkefnin sem lágu fyrir. Tekið var vel á því, fólk var komið upp í hús um ellefu og svo var ekki stoppað fyrr en um áttaleytið um kvöldið. Hulda færði vinnuliðinu kaffi og kakó og með því upp í hús til að spara tíma, það var ekki hægt að stoppa! Um kvöldið beið svo unaðslegt lambalæri eftir okkur sem klikkaði ekki, að venju.
Ási var spengingarmeistari helgarinnar og spengdi allar sprungur í augsýn. Óskar og Aron skelltu sér á Hvammstanga og fjárfestu í nýjum loftbitum og krossvið sem var notaður til að síkka sperrurnar, sem gekk mjög vel þó það hafi ekki klárast alveg. Gaui var öflugur á risabornum og boraði loftgöt undir þakið, með tilheyrandi látum og Óli undirbjó hitalögnina í gólfinu í kjallaranum undir það að vatni væri hleypt á hana.
Efsti parturinn á öðrum skorsteininum (sem var alveg laus og leit út fyrir að væri við að detta á hausinn á okkur) var tekinn niður með aðgerð sem flokkast hæglega undir verkfræðiafrek síðustu aldar. Ég fer ekki í nánari lýsingar en get sagt að örgrannt nælonband (sem Ási hafði ekki mikla trú á í upphafi) og gömul hurð gengdu lykilhlutverki.
Allir nema Óskar keyrðu svo heim um kvöldið, pínu þreyttir en ánægðir með afrakstur dagsins. Óskar gekk svo frá daginn eftir, sem var víst nokkur vinna 
Kjallarinn
Frágangur í kjallara var ræddur um helgina. Sú hugmynd er komin upp að láta kjallarann halda nokkuð grófu yfirbragði og grófmúra veggina í stað þess að klæða þá með gifsplötum eins og áður var rætt um. Ef einhverjir hafa sérstaka skoðun á því hvora leiðina við förum, endilega tjáið ykkur hérna.
Stefnan er svo sett á aðra vinnuhelgi um næstu mánaðarmót, þá væri hægt að klára sperrurnar í loftinu og einangra það. Endilega takið þá helgi frá!
Kv.
Ágústa.
»
Síður:
1 2 3 4